Íslenski Barinn    Pósthússtræti 9     101 Reykjavík    Sími: 578 2020

Íslenski barinn er opinn til 3 um helgar og eldhúsið til 23 alla daga. Bjórkönnurnar frystar,

tónlistin alíslensk líkt og matargerðin þó hún sé reyndar með frumlegri fléttu.


Hádegistilboð alla daga

og barseðill með léttum

réttum til lokunar.

Segja má að hugmyndin að Íslenska barnum sé sjálfsprottin og má  hana rekja til merkisdagsins 22. janúar 2009 þegar táragasi var beitt gegn mótmælendum á Austurvelli. Táragasi hafði ekki verið beitt hér síðan 30. mars 1949, þegar alþingi samþykkti inngöngu Íslands í NATÓ


Þessa örlagaríku nótt í janúar var veitingamaður framan við staðinn og sinnti fólki sem sat við útiborðin, naut veitinga og fylgdist með mótmælunum þegar gasinu var beitt. Þegar hann sá þúsundir manna hlaupa undan gasinu, suma hverja leitandi skjóls inni á staðnum og svo skila sér aftur að berja potta og pönnur áður en gasskýið hafði sest, áttaði hann sig fyrst á því hvað orðið ,,mannhaf” í raun þýðir.


Þegar lokað var um nóttina og starfsfólkið fór að ræða saman voru allir á því að þjóðin hefði breyst og enginn saknaði bankanna, frekar gömlu tímanna, ömmunnar sem beið með kakó og hnallþórur og fólks sem vann við áþreifanlega hluti.


Það varð ekki uppskerubrestur, það voru gerviheimarnir sem hrundu og marmarinn molnaði utan af gamla tímanum sem er eftir allt miklu betri. Það er von okkar sem hér vinnum að þú fáir sömu tilfinningu þegar þú sötrar kaffið þitt hér eða maular á þjóðlegum réttum.

http://islenskibarinn.is/menu.html
umfjollun.html
stadsetning.html